Mynd dagsins: „farið varlega“ - eldingahætta

„Enn ein lægðin á leiðinni. Spáð er djúpri lægð sem kemur yfir landið í dag og verður viðvarandi fram á fimmtudag. Með lægðinni sem stefnir á Reykjanes í dag, þriðjudag, eykst veðuráraun á raforkukerfið.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar er einnig varað við eldingahættu en í tilkynningunni segir enn fremur:

„Eldingahætta verður með meginskilum lægðarinnar í fyrramálið einkum suðvestan- og sunnanlands. Með vestanáttinni í kjölfarið er reiknað með umtalsverðu álagi um sunnan og vestanvert landið af völdum vinds en samkvæmt spám verður vindur mikill.

Við biðjum fólk að huga að lausamunum í nágrenni sínu, byggingarverktaka að huga að svæðum sínum og svo framvegis. Endilega farið varlega og eigið góða vinnuviku.“

\"\"