Eiríkur Jónsson birti skemmtilega mynd á eirikurjonsson.is af manni að ganga yfir Lækjargötu með ryksugu. Nú hefur gátan verið leyst um hver hinn dularfulli ryksugumaður er. Eiríkur greinir frá um hvern er að ræða en þarna var á ferðinni Símon Sigvaldason dómstjóri í Reykjavík. Símon þykir mjög hæfur dómari og er virtur í sinni stétt en er með viðurnefnið Símon grimmi. Árið 2012 þegar fréttastofa Stöðvar 2 gerði úttekt á störfum Símonar kom í ljós að hann hefði aðeins sýknað í tveimur málum af síðustu þrjú hundruð og fjórum sakamálum, og hlutfallið því 99,4 prósent. Það voru því lögmenn sem gáfu Símoni þetta viðurnefni: Símon grimmi.
En Símon er kannski að mýkjast með aldrinum því Eiríkur vitnar í samstarfskonu Símonar sem segir hann hafa viljað gleðja samstarfsmenn sína.
„Hann eyddi allri helginni í að koma starfsfólkinu á óvart með því að gera upp kaffistofuna og tók með sér ryksuguna að heiman af því að hann pússaði upp veisluborðið á kaffistofunni og bæsaði það líka. Þvílík dúlla!”