Eldur kom upp í íbúð við Lágholtsveg í Vesturbæ Reykjavíkur um hálf tvö í dag. Slökkvilið var fljótt á staðinn ásamt sjúkraliðum og lögreglu. Kviknaði eldurinn út frá potti sem gleymdist á helluborði í íbúð í fjölbýlishúsi. Ekki var um mikinn eld að ræða og því ekki mikill reykur í húsinu og tjón lítið. Gekk slökkvistarf vel og tók aðeins örfáar mínútur.