Kristinn nokkur hefir birt mynd af vegan-máltíðinni sem hann fékk í Háskóla Íslands, myndin hefur vakið mikil viðbrögð á Twitter enda þykir máltíðin ekki duga sem hádegisverður.
Vá vá vá elska hvað HÍ er annt um okkur veganisturnar, heilt grillað brokkolí og kaldar kartöflur! Er hægt að biðja um meira?😭🙏🏼🥰 pic.twitter.com/S60GFS2G8c
— Kristinn Snær (@diddisnaer) September 29, 2021
„Það er eins og einhver kokkur af gamla skólanum hafi googlað “is broccoli vegan” síðan bara hent því á grillið,“ segir Kristinn óhress.
Ágúst nokkur birtir svo mynd af veganmáltíðinni í Háskólanum í Reykjavík.
Verður bara að koma yfir. Var að gæða mér á þessari veislu í HR. pic.twitter.com/TmuUJie49J
— Аугуст Берг (@agustberg) September 30, 2021
Hrafnhildur segir ástandið svipað víða þegar kemur að vegan-mat í mötuneytum: „Heimavistin í framhaldsskólanum sem ég var í bauð uppá grænmetisbuff aaallla daga,“ segir hún. „3 mismunandi tegundir sem þau skiptust á að nota samt svo það var allt í lagi.“
Aðspurður hvort þetta sé grín segir Kristinn:
„Ég sá amk Auðunn Blöndal hvergi þó ég hafi verið tekinn, greinilega ekkert grín þarna í Hámu.“