„Dóra Ólafsdóttir frá Sigtúnum á Kljáströnd í Suður-Þingeyjarsýslu er 107 ára í dag, 6. júlí. Hún er elsti núlifandi Íslendingurinn, næstir koma tveir 104 ára karlar. Systkini Dóru voru sjö, Baldvin bróðir hennar varð 95 ára og Þóra Soffía systir hennar er orðin 88 ára.“ Frá þessu er greint á Facebook-síðunni Langlífi. Þar segir enn fremur:
„Að loknu gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskólanum á Akureyri (síðar Menntaskólanum á Akureyri) fór Dóra til Kaupmannahafnar. Þegar hún kom heim starfaði hún sem talsímakona hjá Landsímanum á Akureyri í fjörutíu ár. Dóra og Þórir Áskelsson, eiginmaður hennar, voru búsett lengi á Norðurgötu 53. Þegar hún var hundrað ára árið 2012 flutti hún til sonar síns í Kópavogi en fór seint sama ár á hjúkrunarheimilið Skjól. Dóra sagði í viðtali í Morgunblaðinu í fyrra að hún hefði fengið hollan mat í uppvextinum, alltaf gengið í vinnuna hjá Landssímanum og farið reglulega í sund. Hún hefur áhuga á knattspyrnu, fylgist með fréttum í blöðunum, gengur í mat og kaffi og ætlar ekki að hætta að prjóna í bráð. Ása dóttir Dóru er 85 ára og Áskell sonur hennar 66 ára.
Davíð Stefánsson skáld frá Fagraskógi var kunningi Þóris og Dóru. Langamma Dóru og Jónas Hallgrímsson skáld voru systkinabörn og langafi hennar og Tryggvi Gunnarsson bankastjóri voru systkinabörn. Tryggvi var bróðir Þóru sem Jónas orti um í Ferðalokum. Dóra og Guðríður Hjaltested (mamma Gógó), sem varð 100 ára, voru þremenningar.