Mynd dagsins – bubbi morthens: „hann er grunaður um hafa verið að reykja jónu“

Bubbi Morthens hefur á síðustu árum notið lífsins í Kjósinni. Býr hann þar ásamt eiginkonu sinni, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur og börnum þeirra. Þar hefur Bubbi samið lög, ljóðabækur, smásögur og sinnt garðrækt af miklum myndarbrag. Þar nýtur Bubbi þess að vakna við fuglasöng og stórbrotna náttúru, þar sem Meðalfellsvatnið togar fjöllin til sín og þeytir þeim uppá yfirborðið í tíbránni. En Bubbi tekur einnig myndir og deilir þeim mörgum úr sveitinni á Facebook.

Mynd dagsins birti Bubbi af sveitakettinum Mola en hann hefur áður ratað í fréttir fyrir að vera duglegur við veiðar. Hefur Bubbi lýst Mola sem al­gjör­um „gangster“ sem veiðir fugla og mýs af miklum ákafa.

Bubbi sagði um myndina sem hann birti af Mola að þessu sinni: „Hann er grunaður um hafa verið að reykja jónu“

\"\"