„Í kvöld nældi sér einn heppinn í þennan mat úr gámi við verslun. Þetta er bara einn einstaklingur að sækja fyrir sig. Er ekki komin tími á að verslanir hætti að henda ætum mat í ruslagáma - ætur matur er ekki rusl!“
Þannig hefst færsla samtakanna Vakandi, en þau samtök vilja auka vitundarvakningu um sóun matvæla. Samkvæmt færslunni fundust öll þessi matvæli í heilu lagi í gám við verslun Bónusar í Skeifunni. Matarsóun er mikil í heiminum og telja Sameinuðu þjóðirnar að allt að 35% af öllum matvælum sem sé framleitt sé hent. Benda Sameinuðu þjóðirnar á það að miðað við fólksfjölgun í heiminum verða yfirvöld að bregðast við matarsóun, sem er lang mest á vesturlöndum.
Í Frakklandi hafa yfirvöld gripið til harðra aðgerða og sekta meðal annars matvöruverslanir ef þær henda mat. Verslanir þar í landi verða að sjá til þess að maturinn sé nýttur á einhvern máta, annað hvort seldur með afslætti eða gefin til góðgerðafélaga. Verslanir Krónunnar hafa til dæmis sett um sér svæði í verslunum sínum þar sem viðskiptavinum er boðið að kaupa vörur sem eru við það að renna út. Einnig hafa verslanir Krónurnar gefið vörur sem eru útrunnar.
„Þegar við tölum um matarsóun þá er verið að tala um mat sem er ætur, ekki ónýt matvæli, ekki skurn af eggjum eða bananahýði og svo framvegis. Heldur mat sem er í fínu lagi að borða,“ segir enn fremur í færslunni.