„Vikan hefst með minni blóðbirgðum en æskilegt er og framundan er löng ferðahelgi. Við biðlum því til blóðgjafa að koma til okkar í þessari viku. Við þurfum blóð í öllum blóðflokkum sérstaklega viljum við biðla til O mínus gjafa að koma inn í blóðgjöf.“
Þannig hefst mikilvæg tilkynning frá Blóðbankanum. Þar segir að verr hafi gengið en vanalega að ná í blóðgjafa upp á síðkastið þar sem margir eru á faraldsfæti.
Ungabörn sem þurfa á blóðgjöf að halda fá O mínus blóð. Í mörgum tilfellum er um fyrirbura að ræða. Ein blóðgjöf nýtist í fimm litla poka fyrir ungabörn.
Í tilkynningunni segir: „Erum búin að opna á Snorrabraut og verður opið til kl. 19:00 í dag. Opið á Glerártorgi til kl. 15:00. Vinsamlega deilið fyrir okkur.“