Mynd dagsins: Björn Ingi sýnir kviðvöðvana - „Aldrei of seint að byrja“

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spennir vöðvana í nýrri Facebook-færslu, þar segist hann hafa byrjað að taka heilsuna í gegn fyrir nokkrum árum.

Lítil dóttir Björns Inga var innblásturinn í heilsuátaki hans.

„Ekki var hægt að bjóða lítilli dóttur minni upp á feitan pabba sem gæti ekki leikið við hana eða lifað með henni fram á fullorðinsár,“ segir Björn Ingi meðal annars í færslunni.

Björn Ingi segir það hafa verið kraftaverk að sjá bumbuna hverfa og sá magavöðvana lifna við, „geta farið án aðstoðar í upphýfingar, gert erfiðari tegundina af armbeygjum, fara í sjóböð, læra furðustellingar í jóga og hlaupa lengri vegalengdir eins og ekkert sé.“

Vegna heilsuátaksins er Björn Ingi hættur á blóðþrýstingslyfjum og gerbreytt um lífstíl. Þá sé andlega heilsan allt önnur og spili þar áfengisbindindið stóran part. Hann vonast til að einhverjir líti á þetta sem hvatningu til góðra verka.

„Það er nefnilega allt hægt og aldrei of seint að byrja,“ segir Björn Ingi í lokin