Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, greinir frá því á gamansömum nótum á Facebook að hann hafi fengið póst sem inniheldur hótanir um myndbirtingu af honum á yngri árum, ef hann greiðir ekki eina milljón krónur.
„Ég fékk póst áðan,“ skrifar Benedikt. „Annað hvort borgar þú eina milljón í krumpuðum tíuþúsundköllum … eða við birtum þessa mynd af þér fyrir næstu kosningar,“ skrifar hann.
„Ég hefði kannski sagt já, ef mér hefði verið boðið að borga með korti, en þetta læt ég ekki bjóða mér.
Þannig að ég spara mér þessa milljón. Það er hvort sem er ekkert gaman í pólitík.“
Líkt og sjá má var Benedikt ansi hárprúður á sínum yngri árum og ekki víst að það muni gera honum nokkurn óleik þó myndin hafi verið birt.