Mynd dags­ins: Ás­laug Arna í 365 metr­a hæð

Ás­laug Arna Sigur­björns­dóttir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra, birti heldur betur skemmti­lega mynd af sér á Face­book í dag.

Á myndinni sést Ás­laug hanga á brúninni á hinum fræga CN Tower í Tor­onto, einni hæstu byggingu heims, í 365 metra hæð.

Ráð­herra virðist þó síður en svo loft­hrædd og skrifaði undir myndina:

„Góðri vinnu­ferð hér í Kanada lauk með því að hanga á brúninni á CN Tower í 365 metra hæð og njóta út­sýnisins yfir stór­borgina Tor­onto úr lofti sem virtist bara ansi smá.“

Skjáskot/Facebook
Áslaug Arna er greinilega ekki lofthrædd.
Mynd/Facebook