Umræða um svokallaðan þriðja orkupakka er nú í gangi á Alþingi. Umræðan um pakkann hefur tröllriðið stjórnmálaumræðu á landinu undanfarið og hafa til dæmis mikið af fyrrverandi ráðamönnum landsins varað stórlega við innleiðingu pakkans. Á meðan hafa núverandi ríkisstjórnarflokkarnir ásamt stjórnarandstöðuflokkum sagt að ekkert sé að óttast við innleiðingu pakkans.
Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarnar birti mynd af tómum þingpöllum í dag og sagði að áhugi almennings á þriðja orkupakkanum virtist vera stórlega ofmetinn. Samkvæmt heimildum Hringbrautar eru þingpallar Alþingis enn þá tómir.