Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, varaþingmaður Viðreisnar, notaði tækifærið í gær til að spyrja spurningar sem eflaust hefur brunnið á mörgum landsmönnum en það er hvernig þeirra bera fram nafnið á Bugles snakkinu sem fylgt hefur landsmönnum í áraraðir.
Það er nefnilega ekki alveg sama hvernig orðið er sagt og er hinn íslenski framburður „Böggles“ heldur frábrugðin því hvernig enskumælandi fólk talar um snakkið.
Dagbjartur brá því á það ráð að leggja spurningunA fyrir landsmenn og verður nú hver fyrir sig að ákveða hvernig þeir vilja tala um þetta sögufræga snakk.
Viðbrögðin við spurningu Dagbjarts hafa ekki látið á sér standa og segir fólk meðal annars notandinn Ágústa Klara: Bíddu sorry en hvaða umrenningar eru að segja Bjúgels?
Þá segir eining notandinn Ragnheiður Kr: „Ef einhver Íslendingur segir bjúgels á að bróka viðkomandi“
Þá er einn notandi sem vill að orðið verði íslenskað og tala eigi um „Böggla.
Greinilegt er að flestir eru á því máli að íslenskur framburður orðsins eigi að vera fyrir valinu en notandinn Hafliði Vilhelmsson bendir á að munur sé á því hvernig hann ber það fram hvort hann kaupi snakkið á Íslandi eða erlendis: „Fer eftir því hvort ég kaupi það hér eða á Englandi,“ segir hann.
Loksins þorir einhver að ræða stóru málin pic.twitter.com/s6i8CCEISo
— Dagbjartur Gunnar (@dagbjartur) March 3, 2023