Hér að ofan má sjá mynd af þeim tveimur mönnum sem lögregla leitar nú vegna bankaráns í Landsbankanum, Borgartúni, kl. 13.30 í dag.
Einkum má ætla að þekkja megi manninn til vinstri á myndinni.
Lögreglan leitar þeirra og varar fólk við afskiptum af þeim en hvetur fólk til að hafa samband við 112 og gefa lögreglu upplýsingar ef þær eru fyrir hendi um ferðir mannanna.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, segir að allir tiltækir lögreglumenn leiti nú ræningjanna og má leiða líkum að því að stóri hluti lögreglumanna beri vopn í þeirri leit.