Mýið óvenju snemma á ferð

\"Í ljósi þess að það virðist í tísku að fjalla um það sem miður fer og illa gengur ætla ég að leyfa mér að dásama það sem vekur gleði og gengur vel.\"

Þannig skrifar Helgi Héðinsson á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit og fagnar fuglasvermi á facebook.

\"Í dag 10. apríl er um að litast á Strönd sem á fögrum sumardegi. Umtalsvert mý í lofti (sérstaklega miðað við árstíma) og urmull fugla streymir nú að til sumardvalar. Það er enn áhugaverðara um að litast við Voga, Garð og Höfða þar sem fuglalífið brosir enn breiðar. Nú er spurning hvort blaðasnáparnir séu jafn vel vakandi og upp á síðkastið,\" skrifar Helgi.

Hringbraut tekur Helga á orðinu og birtir mynd hans sem fylgir fréttinni. Má staðhæfa að sjaldan hafi mýflugur vaknað svo snemma árs. Mýið er ein helsta undirstaða fugla og fiska og næra einstætt lífríki sveitarinnar. Þótt flugur plagi stundum ferðalanga er löng hefð fyrir því að heimamenn, einkum bændur í sveitinni, fagni flugunum í sveitinni. Enda felst í þeim afkoma.