Myglusveppur er ört vaxandi vandamál í útveggjum á Íslandi. Þetta vandamál er meðal þess efnis sem fjallað er um í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld, 7. mars. Áltak sérhæfir sig í þak- og veggklæðningum í stórum stíl og þar er boðið upp á fjölmargar lausnir. Flestir þekkja jú bárujárnið sem hefur verið notað nánast frá aldaöðli en nú eru komin ný efni og endingarbetri og komið verður inn á það í þættinum. Einnig verður umfjöllun um svokallaðar jarðvegsskrúfur sem er byltingarkend nýjung í festingum fyrir útihús, fánastangir, palla, hjólhýsi og margt fleira en Áltak býður m.a. upp á lausnir á þessu sviði. Þá verður komið inn á svokallaða hljóðvist sem er vandamál víða án þess að margir geri sér grein fyrir því. Umsjónarmaður er Sigurður K. Kolbeinsson sem ræðir við Magnús Ólafsson framkv.stjóra ásamt fleiri sérfræðingum sem starfa hjá Áltaki. Myndataka er að vanda í höndum Friðþjófs Helgasonar.
Mygla í útveggjum er vaxandi vandamál
Fleiri fréttir
Nýjast