Myglusveppur: flutti 12 ára að heiman

Það getur verið mjög mismunandi hverjir veikjast á heimilinu ef myglusveppur er til staðar. Á meðan sumir finna ekki fyrir neinu, geta aðrir orðið mjög veikir.

Þá getur það líka verið nokkuð flókið að rekja veikindi til myglusvepps, því einkenni fólks eru svo mismunandi. Þannig geta einstaklingar innan sömu fjölskyldu veikst af völdum myglusvepps, en enginn þó með sömu einkenni.

Þetta er meðal þess sem fram kom í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í vikunni, en hann verður endursýndur annaðkvöld og er einnig hægt að sjá hér á vef stöðvarinnar. Þar var rætt við Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur, líffræðing, sem sagði engar skyndilausnir til við  myglusvepp. Aðalmálið væri að finna orsökina fyrir rakanum og koma í veg fyrir upprunan. Stundum þarf að endurhanna heilu byggingarhlutana til að koma í veg fyrir að myglusveppurinn taki sig upp á ný.

Í þættinum var einnig rætt við Hörpu Karen sem aðeins 12 ára gömul, þurfti að flytja frá fjölskyldunni sinni vegna veikinda sem orsökuðust af myglusvepp. Í upphafi var ætlunin að vera hjá ömmu sinni og afa í eina viku, en sú vika endaði sem margra mánaða dvöl. Það var vegna þess að Harpa Karen lagaðist strax af einkennunum þegar hún flutti til ömmu sinnar og gat því ekki snúið við aftur. Saga fjölskyldu hennar er dæmi um þá stöðu sem fólk getur lent í, þegar myglusveppur kemur upp á heimili og fjölskyldan þarf að flytjast í burtu eða jafnvel að tvístrast, vegna hans. Harpa Karen er 14 ára í dag og orðin heilsuhraust. Hún er samt fljót að finna fyrir einkennum myglusvepps, ef hún fer í húsnæði þar sem hann er til staðar. Það geta þá verið staðir þar sem annað fólk gerir sér ekki grein fyrir því að myglusveppur er í húsnæðinu.

Ég bara spyr er endursýndur á Hringbraut  á föstudags- og sunnudagskvöld.