Múslimar mótmæltu fundi á grand hótel

Hópur múslima á Íslandi mótmælti í dag fundi trúbræðra sinna á Grand hóteli í Reykjavík, en þar hélt sænskur fyrirlesari tölu um hvernig múslimar eigi að aðlagast vestrænum samfélögum.

Að sögn starfsfólks á Grand hóteli höfðu mótmælendur sig nokkuð í frammi, en ekki kom þó til neinna átaka, utan þess að einn mótmælandinn komst inn á fundinn og hafði þar uppi háreisti. Á milli 15 til 20 manns tóku þátt í mótmælastöðunni, en hún mun vera komin til sakir óánægju með sænska fyrirlesarann, Hussein Aldaoudi Al-Risalah sem þykir í meira lagi umdeildur í heimalandi sínu, Svíþjóð, og fara þar á svig við hefðbundnar trúarskoðanir múslima og gildi þeirra, en þar kennir hann í skóla í múslímskum fræðum.

Í fyrstu var talið að hópurinn framan við hótelið í dag samanstæði af Íslendingum sem væru að mótmæla veru múslima á Íslandi, en svo reyndist ekki vera, því í hópnum voru fyrst og fremst músmlimar sem hafa búið hér á landi um langt árabil.