Musk: það verður beint lýðræði á mars

Elon Musk er að gera geimflaug klára fyrir leiðangur til Mars.

Undirbúningurinn gengur bara vel, að því er kom fram í fyrirlestri í gær á South by South West (SXSW) kvikmynda-, tónlistar og tæknihátíðinni í Austin í Texas.

„Ég hugsa að við náum nokkrum stuttum flugferðum upp og niður einhvern tíma á fyrri hluta næsta árs,“ sagði Musk. Eins og kunnugt er hefur Musk unnið um árabil í fullri alvöru að því að setja upp nýlendu Jarðarbúa á Mars. Hann undirstrikaði á fyrirlestrinum í gær að það væri lífsnauðsyn fyrir mannkynið að komast til reikisstjörnunnar fyrir næstu heimstyrjöld, sem hann sagði „líklega“. Hann lítur á nýlenduna sem tryggingu mannkyns gegn útrýmingu.

Líkurnar á að Elon Musk takist þetta ætlunarverk urðu raunverulegri í síðasta mánuði eftir velheppnaða tilraun með Falcon Heavy geimflaugina, sem slengdi rauðum Tesla Roadster sportbíl Musks áleiðis til Mars. Bíllinn er nú kominn tæpa 10 milljón kílómetra frá Jörðu. Hraðinn mældur frá Jörðu er nú næstum 11.600 km/klst en frá Mars mælist hraðinn í átt að reikisstjörnunni um 63.340 km/klst (því Jörðin nálgast Mars).

Í fyrirlestrinum í Austin í gær ræddi Musk um hugmyndir sínar varðandi nýlenduna og sagði að líklegast stjórnarfarið þar yrðii beint lýðræði. „Allir fá að kjósa um allar ákvarðanir og þannig verður það,“ sagði Musk.

Musk endurtók líka áhyggjur sínar af hættunum sem fylgja þróun gerfigreindar og furðaði sig á að ekki væri búið að tryggja að opinbert eftirlit væri fyrir hendi á þessu sviði.