Litlar breytingar hafa í þrjú verið á afstöðu almennings á Íslandi til inngöngu landsins í Evrópusambandið (ESB)
Á vefsíðu MMR- Markaðs og miðlarannsókna ehf er að finna tölur og umsögn um nýja könnun MMR.
Mjög hlynntir ESB aðild mælast vera 11,3%.
Frekar hlynntir ESB aðild mælast vera 17,7%.
Hvorki hlynntir né andvígir mælast vera 23,1%.
Frekar andvígir segjast 16,2% vera.
Mjög andvígir segjast 31,7% vera.
Svarfjöldi var 1017 manns og var könnun þessi gerð 15. til 21. júní 2017.
Munur er á afstöðu hópa. Íbúar í þéttbýli eru hlynntari ESB inngöngu en fólk á landsbyggðinni.
Einnig eru líkur á að kjósendur Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins séu andvígir ESB aðild sem og flestir aðspurðra sem styðja ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra.
PS
Benda má á að 36% sem taka afstöðu vilja inngöngu Íslands í ESB sem er merkilega mikill stuðningur í ljósi þess að engin umræða fer nú fram á Íslandi. Meirihluti Samfylkingar Vinstri græn Pírata Bjartrar framtíðar og Viðreisnar er að því er virðist hlynntur ESB inngöngu.
Nánar www.mmr.is www.ruv.is