Munu yngri kjósendur skila sér?

Verða ný húsnæðisfrumvörp til þess að stjórnarflokkarnir fái atkvæði unga fólksins? Styrmir Gunnarsson spyr að þessu á vefsíðu sinni en húsnæðislausnirnar nýju eru einungis ætlaðar ungu fólki. Ýmsar hliðar eru á þessum lausnum sem ríkisstjórnin býður upp á og kynnti í byrjun vikunnar, svo sem hve stór hópur mun raunverulega geta nýtt sér þessi úrræði. Og munu vextir lækka? Síðan er stóra spurningin sú af hverju ekki er unnið að því að bjóða fjölbreyttara búsetuform en að þröngva séreignastefnunni upp á alla.  Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar benti á í viðtali  á Hringbraut í gær að lántakendur sitji alltaf uppi með áhættuna sem fylgir krónunni, lánveitendur verji sig alla leið og halda úti háum vöxtum svo ekkert tap verði í þeirra bókum. Hringbraut ræðir við Magnús Árna Skúlason á Hringbraut í kvöld um leiðirnar þrjár sem eiga að gera allt að 14 þúsund yngri Íslendingum kleift að kaupa fasteign.