Munnræpa minnihlutans vandi alþingis

Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar og þingmaður Framsóknarflokksins segir að vandi Alþingis þessa dagana sé að stjórnarandstaðan vilji ekki segja meirihlutanum hve lengi minnihlutinn hyggist tala. Hún telur umræðu um að von sé á vendingu um afturvirka hækkun bóta ofmælta.

Þetta kom fram á þingi rétt í þessu. Oddný Harðardóttir, Samfylkingar, sagði að ummæli Vigdísar yllu vonbrigðum. Spurt var hvort deilur væru um bótamálið innan meirihlutans.

Vigdís hafnaði að deilur væri meðal meirihlutans en sagði að deilur og stór orð væri að finna í ríkum mæli innan minnihlutans.

„En mál þokast ekki áfram á meðan andstaðan segir okkur ekki hve lengi hún ætlar að tala,“ sagði Vigdís Hauksdóttir.