Í kjölfar hrunsins réðust yfirvöld í átakið Inspired by Iceland sem er talið hafa skilað sér í mikilli fjölgun ferðamanna hingað til lands, en ótrúlegur uppgangur markaði upphaf þess góðæris sem ferðaþjónustan og aðrir nutu góðs af.
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, minnist þessara aðgerða yfirvalda nú þegar ljóst er að WOW air mun verða tekið til gjaldþrotaskipta, með tilheyrandi afleiðingum fyrir ferðaþjónustuna og samfélagið allt:
„Rifja upp að í kjölfar fjármálaáfallsins fyrir 10 árum setti ríkisstjórn og atvinnulífið einn milljarð – þúsund milljónir – í að auglýsa Ísland fyrir ferðamönnum heimsins. Allir þekkja árangurinn. – WOW flutti 920 þúsund farþega til Íslands í fyrra. Fall félagsins er því mikið högg fyrir ferðaþjónustuna. Hvernig mun núverandi ríkisstjórn bregðast við til að laða hingað erlenda ferðamenn?“
Nánar á