Mun hvetja blaðamenn til verkfalls: „það er eina vopnið sem fátækt fólk hefur“

„Við fengum tilboð á fimmtudag sem var gjörsamlega óviðunandi. Við hefðum getað fengið það í apríl í vor, því það var ekkert tillit tekið til ítarlegra viðræðna sem við höfum verið í í allt sumar. Þannig að það var ekkert annað í stöðunni en að slíta viðræðum, því miður, og undirbúa aðgerðir.“

Þetta segir Hjálmar Jónsson formaður Blaðamanannafélag Íslands um stöðuna sem komin er upp vegna kjaraviðræður félagsins.

Blaðamenn hafa ekki farið í verkfall síðan árið 1978 en þá voru netmiðlar ekki komnir og segir Hjálmar því erfitt að segja til um hvernig aðgerðirnar myndu líta út en taka þurfi tillit til breyts fjölmiðlalandslags.

„Við erum ekki að fara fram á meiri hækkanir eða launaútgjöld fyrir fyrirtæki heldur en í öðrum samningum. Við viljum hins vegar aðlaga samninginn að aðstæðum og starfsskilyrðum blaðamanna. Þegar ekkert tillit er tekið til okkar óska eða skilyrða þá verðum við að grípa til aðgerða,“ segir Hjálmar sem segist ekkert annað í stöðunni en að hvetja blaðamenn til verkfallsaðgerða.

„Það er eina vopnið sem fátækt fólk hefur.“