Mun fleiri vilja jón gnarr en ólaf

Helmingi fleirir landsmenn vilja Jón Gnatt fyrrverandi borgarstjóra á stall forseta Íslands en núverandi forseta, Ólaf Ragnar Grímsson samkvæmt skoðanakönnun sem RÚV birti í gærkvöld. 

11 pró­sent Íslend­inga vilja Ólaf Ragn­ar Gríms­son, nú­ver­andi for­seta áfram í embætt­inu en 21 pró­sent Jón Gn­arr. Jón hef­ur þegar lýst því yfir að hann muni ekki bjóða sig fram. Sex­tíu pró­sent Íslend­inga hafa ekki enn mótað skoðun á því hvern þeir vilji sem næsta for­seta Íslands sam­kvæmt þjóðar­púlsi Gallups.

Gallup spurði ríf­lega 1.400 manns í net­könn­un dag­ana 19. júní til 1. júlí. Af þeim sem tóku af­stöðu vill 21 pró­sent Jón Gn­arr, rit­stjóra 365 og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, sem næsta for­seta Íslands, 17 pró­sent þeirra sem svöruðu vilja að Katrín Jak­obs­dótt­ur formaður Vinstri grænna verði for­seti en 11 pró­sent sögðust vilja Ólaf Ragn­ar Gríms­son.

Aðrir komust ekki á blað.