Ofnæmi fyrir köttum hefur aukist verulega og þá ekki bara á Íslandi heldur alls staðar annars staðar líka. Þetta kom fram í þættinum Ég bara spyr sem sýndur var á Hringbraut í kvöld.
Meðal viðmælenda í þættinum var Berglind Bergsdóttir, dýralæknir hjá Dýralækningamiðstöðinni í Grafarholti, sem segir það almennan misskilning hjá fólki að kattarofnæmi stafi af kattarhárum. Tilefni viðtalsins við Berglindi var skemmtileg fyrirspurn sem barst til upplýsingaveitunnar Spyr.is, samstarfsaðila Hringbrautar, þar sem spurt var hversu gamall elsti kötturinn væri á Íslandi.
Áhorfendur Hringbrautar eru hvattir til að taka þátt í dagskrárgerð þáttarins Ég bara spyr, með því að senda inn fyrirspurnir til Spyr.is. Þaðan er valið úr spurningum og svörum og málin rædd nánar í þættinum á Hringbraut.
Þátturinn er endursýndur á Hringbraut í dag, en einnig sjáanlegur á vef Hringbrautar.