Mun beita sér gegn haustkosningum

 Í viðtali Morgunblaðsins við Sigmund Davíð Gunnlaugsson er hann spurður um afstöðu hans til haustkosninga, einkum þar sem bæði Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafa lofað kosningum í haust, þótt þeir nefndu ekki nákvæma dagsetningu.

„Þá bara minni ég á að þegar talað var um þetta, að flýta kosningum, þá var það alltaf sett í samhengi við að það þyrfti að klára málin. Það næsta sem gerðist var að stjórnarandstaðan hélt sig við vantrauststillöguna. Eftir það hefur skort töluvert á að stjórnarandstaðan ýti undir að þessi verk klárist sem þarf að koma í gegn. Píratar tala eins og stjórnin eigi ekki að fá tækifæri til að klára verkefnin. Þeir tala um að taka þingið í gíslingu. Þá er þetta farið að snúast um að þeir séu að eigna sér þingið og stöðva það sem ríkisstjórnin vill klára og þá er þetta búið að snúast í andhverfu sína,“ svarar Sigmundur.

Hann er þá spurður hvort ekki sé erfitt að bakka út úr því að kjósa í haust.

 „Á Íslandi er kjörtímabilið fjögur ár. Það eru ekki nema tvær ástæður fyrir stjórnarslitum; annars vegar ef stjórnarmeirihlutinn heldur ekki og hins vegar ef stjórnin telur sig hafa lokið verkefni sínu og að það sé orðið tímabært að boða til nýrra kosninga. Ég sé engin merki þess að stjórnin sé að falla. Er stjórnin að ná að klára sín verkefni? Ég get ekki séð að svo sé. Það má ekki gleyma kjósendum sem studdu okkur. Við höfum ekki siðferðislegan rétt til þess að boða til kosninga í haust nema menn séu búnir að klára það sem þeir lofuðu.“

Hvernig muntu beita þér?

„Á hvaða hátt sem ég get, ekki aðeins út á við heldur einnig inn á við. Stjórnmálaflokkur þarf á því að halda að flokksmenn séu með í slagnum. Ég mun beita mér fyrir því. Hvað ríkisstjórnina varðar mun ég hafa aðkomu að því hvernig þetta gengur fyrir sig.“

Er algjörlega útilokað að þú stefnir á að fara aftur í ríkisstjórn á þessu kjörtímabili?

„Ég met það hverju sinni hvað er best til að ná framgangi mála og mun gera það á hverjum degi. Það er mikilvægast.“

Byggt á viðtali Morgunblaðsins.