Mun aldrei aftur taka faðmlögum sem sjálfgefnum hlut

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og aðgerðarsinni, er þakklát fyrir að geta loks sameinast ástvinum sínum eftir langa bið.

Að sögn Þórdísar varð hún veik ásamt unnusta sínum Víði Guðmundssyni á meðan þau dvöldu í Svíþjóð í vor og gruna þau að þar hafi verið um að ræða COVID-19.

„Ég vaknaði æpandi eina nóttina með beinverki sem voru eins og tannpína í leggjunum. Önnur einkenni voru hausverkur, þreyta, sviði í lungum og andþyngsli. Við einangruðum okkur heima og ákváðum að deila engu um líðan okkar, til að valda ekki foreldrum okkar og börnum á Íslandi hugarangri.“

Áður en þau komu til Íslands í síðustu viku fóru þau í mótefnamælingu í Svíþjóð. Kom þeim mjög á óvart að Þórdís hafi mælst með mótefni fyrir COVID-19 en ekki Víðir.

„Við urðum veik samtímis, hvernig stendur á því að þú ert ein með mótefni en ekki ég? Eftir þetta höfum við heyrt frá þónokkrum sem voru með staðfest Covid smit en mælast ekki með mótefni í dag.“

Óljóst sé hve lengi mótefni sem myndist eftir COVID-19 sýkingu virki og sænsk yfirvöld segi núna að þau sem séu með mótefni muni líklega ekki sýkjast innan sex mánaða. Þá gætu þeir sem hafi áður smitast af COVID-19 en væru ekki lengur með mótefni mögulega sýkst aftur.

„Við vitum svo lítið um þessa veiru, enn sem komið er. Það eina sem ég er handviss um að ég mun aldrei taka faðmlögum sem sjálfgefnum hlut aftur.“