Ms leggur arla í finnska skyrstríðinu

Mjólkursamsalan og umboðsmenn hennar í Finnlandi hafa loks haft betur gegn sænska mjólkurrisanum Arla, þeim langstærsta á norrænum markaði, í heldur langvinnu stríði um notkun nafnsins \"skyr\" í sölu á matvælum.

Þeir fyrrnefndu hafa nú fengið lögbann á sölu sænska risans á vörum sem merktar eru þessa gamla íslenska heiti á mjólkurvörum sem að líkindum er komið í íslenskt mál úr keltnesku á fyrsta árþúsindinu eftir Krist.

Að því er segir á heimasíðu MS þarf Arla að fjarlægja allt sitt skyr úr verslunum í Finnlandi innan viku frá uppkvaðningu dómsins í þessa veru, en féllst á öll meginrök MS í málinu og vegur hefðarrétturinn þar miklu.