Fréttamaðurinn og listamaðurinn Ómar Ragnarsson þekkir þjóð sína harla vel, enda fáir núlifandi Íslendingar, ef nokkrir, sem hafa kynnst landi sínu og þjóð um sína daga. Hannm skrifar um mótsagnirnar í lífi landsmanna á bloggi sínu í vikunni.
\"Fyndnar mótsagnir blasa við hvert sem litið er á okkar kæra landi,\" skrifar þessi virti lífskúnstner: \"Sama manneskjan, sem er svo löt, að hún nennir ekki að ganga 20-30 metra, heldur leggur bílnum sínum í stæði hreyfihamlaðra, fer inn í ræktina til þess að hlaupa lengi lengi eins og óð væri á hlaupabretttinu.\"
Hann þekkir fleiri dæmi: \"Sama manneskjan og nennir ekki að ganga frá lóðunum eftir æfinguna með því að færa þau um nokkra metra, er búin að lyfta þeim löðursveitt og másandi og blásandi í brjálæðislegri törn lengi á undan.\"
Ómar segir að kunnugir ætli að þetta tíðkist hvergi nema á Íslandi: \"Sama manneskjan og búin er að ganga rösklega með hundinn sinnum kílómetrum saman, nennir ekki að ganga 200 metra út í búð, heldur ekur þetta steinsnar á 3ja tonna jeppanum sínum,\" bloggar Ómar eins og honum er einum lagið.