Mótmælendur ætla að koma saman klukkan 14.30 við Bessastaði vegna ríkisráðsfundar þar sem til stendur að skipta um forsætisráðherra. Yfirskrift mótmælanna er: \"Mótmæli við brúðuleikhúsið í konungsgarðinum á Bessastöðum\".
Birgir Guðmundsson stjórnmálafræðingur og dósent við HA hefur sagt opinberlega að Ólafur Ragnar Grímsson sé augljóslega \"guðfaðir\" ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannssonar sem tekur að óbreyttu til starfa sem forsætisráðherra eftir ríkisráðsfund á Bessastöðum í dag. Reiði almennings virðist ekki hamin og beinist hún ekki bara að stjórnarflokkunum vegna spillingarmála heldur einnig þætti forseta Íslands eftir því sem yfirskrift mótmælanna í dag ber með sér.
Mótmælendur sem Hringbraut hefur rætt við í morgun telja alls ekki augljóst að Sigmundur Davíð sé úr sögunni sem valdamesti stjórnmálamaður þjóðarinnar. Varaformaður flokksins sem studdi hann í Wintris-málinu verði forsætisráðherra í hans stað. Náinn ráðgjafi Sigmundar verði utanþingsráðherra í atvinnuvegaráðuneytinu í stað Sigurðar Inga. Sigmundur Davíð sitji áfram sem þingmaður og formaður flokksins. Í fyrradag hafi mátt skilja á tilkynningu frá forsætisráðuneytinu að um tímabundið leyfi væri að ræða en á sama tíma hefur Hringbraut rætt við fjölda mótmælenda sem leggur áherslu á að koma verði Sigmundi Davíð burt úr trúnaðarembættum stjórnmála eftir það rof á trúnaði sem hafi orðið milli hans og þjóðar vegna ósanninda hans og Wintris-félagsins.