Mótmæli við þinghúsið á næstunni

Málefnahópur ÖBÍ um kjaramál hefur boðaðð til samstöðumótmæla við Alþingishúsið í dag klukkan 11. desember, kl. 10.00.

Verður þess krafist að lífeyrisþegar fá afturvirka hækkun eins og aðrir þjóðfélagsþegnar og að hækkunin verði að lágmarki í samræmi við krónutöluhækkun lægstu launa í maí síðastliðnum.

Í komandi viku verður mætt við Alþingi daglega til samstöðumótmæla, í um klukkutíma í senn.

Í fjárlagafrumvarpi ársins 2016 er gert ráð fyrir að lífeyrir almannatrygginga hækki frá 1. janúar 2016 um 9,4%. Sú hækkun myndi skila lífeyrisþegum rúmlega 13 þúsund króna hærri ráðstöfunartekjum mánaðarlega að hámarki. Lægstu laun hækkuðu um 31.000 kr. (fyrir skatt) frá 1. maí 2015.

Nokkuð er liðið síðan síðast var mótmælt við þinghúsið en ef marka má viðbrögð við gjörðum Útlendingastofnunar og Ólafar Nordal innanríkisráðherra mun að líkindum draga frekar til tíðinda.