Mótmælaskilti vekur reiði: „Ég er orðlaus“

Skilti sem notað var á mótmælunum gegn sóttvarnaraðgerðum stjórnvalda hefur vakið reiði og furðu á samfélagsmiðlum. Á skiltinu stendur: „Bólusetning=Nauðgun“ og vísar væntanlega til þess að bráðlega verður byrjað að bólusetja fyrir COVID-19 hér á landi. Skal það tekið fram að það hefur aldrei verið rætt af íslenskum stjórnvöldum að skylda fólk í bólusetningu.

Mynd af skiltinu var deilt á Twitter með orðunum: „Í einhverskonar forvitnis-/sjálfspyntingarkasti sótti ég um aðgang í coviðspyrnuhópinn á facebook. Hann var ekki lengi að ganga fram að mér.“ Segir í athugasemd: „Ég er orðlaus.“

129381250_10159209264614658_3425652770345322289_o.jpg

Mynd af skiltinu á tröppum þinghússins var deilt af Þórdísi Björk Sigurþórsdóttur í hópnum Coviðspyrnan á Facebook. Þórdís hefur skrifað mikið um COVID-19 að undanförnu, en hún vakti mikla athygli um daginn þegar hún sakaði lögreglu um að fara offari við heimili sitt, meðal annars að hafa kíkt inn um glugga til að kanna hversu margir væru þar staddir. Ræddi hún um málið meðal annars í Síðdegisútvarpi Rásar 2.

Lögregla vísaði ásökunum Þórdísar á bug og sagði hana hreytt fúkyrðum í lögreglu, alls hafi 20 grímulaus ungmenni yfirgefið heimili hennar.