Boðað hefur verið til mótmæla kukkan 17 í dag við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Á facebook er búið að stofna hóp vegna hinna fyrirhuguðu mótmæla en þar er spurt eftirfarandi spurningar:
„Hvenær megum við búast við sanngjörnum niðurstöðum í kynferðisbrotamálum?“
Einnig segir: „Íslenskir dómstólar eru ófærir um að sinna starfi sínu við að tryggja réttlæti á Íslandi. Frá fáránlegum niðurstöðum í nauðgunarmálum þar sem gerendur játa fyrir rétti en dæmast sýknir saka, til vanhæfni í að fylgja jafnréttislögum í ráðningar eigin embætta – ekki verður unað við lengur. Slík vinnubrögð sem við höfum séð síðustu ár eru óásættanleg í lýðveldi.“
Brýningin endar á orðunum: „Við mótmælum öll fyrir utan Héraðsdóm Reykjavíkur kl. 17:00.“