Mörkin óljós milli kláms og listar

"Í íslenskri dægurmálaumræðu er vinsælt að velta fyrir sér orðaskilgreiningum. Hvað er list? Hvað er klám? Hvað er ofbeldi? Afleiðingin er sú að umræða um mál þar sem þessi fyrirbæri leika aðalhlutverk hættir fljótt að snúast um efnislega innihald, en fer þess í stað út í orðsifjafræði"


Þetta skrifar Helgi Hrafn Gunnarson þingflokksformaður Pírata í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is og segir jafnframt að þegar orð geri lítið annað en að þvælast fyrir umræðunni þá sé þess virði að muna hvers vegna maður hugðist nota það til að byrja með; jú, til að útskýra eitthvað, skiptast á hugmyndum, skoðunum, hugsunum og tilfinningum. 


"Tökum fyrir muninn á list og klámi," skrifar píratinn áfram: "Af einhverjum ástæðum hefur fólk ákveðið að list sé sjálfkrafa jákvætt hugtak og eigi þ.a.l. að vera heimil, en klám sé hinsvegar sjálfkrafa neikvætt hugtak og eigi þ.a.l. að vera óheimilt, allavega í einhverjum skilningi (til að vernda börnin eða hvaðeina). Þá, þegar nýtt, meint listaverk er gefið út, svosem gróf og ofbeldisfull kvikmynd, nú, eða þegar nýjasta rapplagið kemst í hámæli, þá byrjar umræðan strax; er þessi tiltekni hryllingur, sem um er rætt, list eða klám eða ofbeldi eða hvað? Þá er umræðan yfirleitt, ef ekki alltaf, í samhengi við spurninguna um það hvort umræddan hrylling beri að heimila eða hindra."


Og Helgi bendir á: "En spurningin um það hvort einhvern hrylling beri að heimila eða hindra kemur því nákvæmlega ekkert við hvaða merkimiði er hengdur á hann. Tökum sem dæmi vinsælt dægurlag úr smiðju hjartaknúsarans Eminem, "Kill You". Umrætt lag virðist samið í þeim beina tilgangi að ganga fram af hlustandanum og gera það meira að segja fyndið. Hryllilegt og fyndið á sama tíma - varla fer það vel í börnin. Er það list? Maður gæti spurt; er það list að lítillækka konur og dásama ofbeldi? Eða er það klám?"


Lesa má alla hugleiðingu Helga Hrafns um mörkin á milli kláms og listar í pistladálknum á forsíðunni á hringbrautr.is.