Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur fellt úrskurð í kærumáli Auðuns Freys Ingvarssonar, fyrrum framkvæmdastjóra Félagsbústaða, gegn Morgunblaðinu vegna fréttar af starfslokum hans þann 4. mars síðastliðinn. Niðurstaða siðanefndar er að Morgunblaðið hafi brotið gegn siðareglum og að brotið sé ámælisvert.
Þetta kemur fram á vef Kjarnans.
Frétt um starfslok Auðuns Freys var birt í Morgunblaðinu hinn 4. mars 2019 og á vefnum mbl.is. Málið var kært til siðanefndar þann 5. apríl síðastliðinn og kærandi er Auðunn Freyr. Í kærunni eru gerðar alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð hins kærða blaðamanns.
Auk þess segir í umfjölluninni að ritstjórn Morgunblaðsins hafi ekki brugðist við réttmætri kvörtun kæranda þegar hann vakti athygli hennar á því að blaðamaður hefði ekki haft samband við hann við vinnslu fréttarinnar
Ítarlega frétt um málið er að finna á vef Kjarnans.