Mörg þúsund aftur til vinnu vegna virk

Um 7500 einstaklingar hafa komist aftur til vinnu með því að nýta sér úrræði starfsendurhæfingarsjóðsins Virk. Hjá sjóðnum fær fólk einstaklingsbundna ráðgjöf.

Í sjónvarpsþáttunum VIRK á Hringbraut skoðar Linda Blöndal Virk starfsendurhæfingarsjóðinn og hve miklu starf sjóðsins hefur skilað til samfélagsins frá því hann var stofnaður fyrir tíu árum síðan. „Meginmarkmiðið er að hjálpa einstaklingum sem búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests að efla starfsgetu sína og komast aftur í virka þátttöku á vinnumarkaði“, segir Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Virk.

Vigdís segir fólkið sem nýtir úrræðið vera mjög fjölbreyttan hóp sem eigi það sameiginlegt að búa við skerta starfsgetu vegna heilsubrests, sem er lykil skilyrði þjónustunnar en einnig verður fólk að hafa getu og vilja til að taka þátt í þeirri þjónustu sem er veitt.

„Partur af þjónustunni er að hvetja og styðja. Þetta er allur aldur, þetta eru bæði kynin þó að konur séu fleiri en karlar og þetta eru allar starfsstéttir í raun og veru“, segir Vigdís einnig.

Fleiri tilfelli vegna geðsjúkdóma og þyngri vandamál

Geðræni vandinn hefur aukist, segir Vigdís um þann hóp sem leitar til Virk, en upphaflega áttu þeir félagar einir rétt á hjálp sem voru í stéttarfélögunum sem stóðu að Virk en með lögunum sem sett voru um endurhæfingu árið 2012 öðluðust allir á vinnumarkaði rétt inn til Virk - svo framarlega sem þeir uppfylltu þau áðurnefnd lykil skilyrði.

Með lögunum kom svo meira af yngra fólki en áður í endurhæfingu og einnig einstaklingar sem höfðu verið lengi frá vinnu.  Vigdís segir því vandamálin heilt yfir vera orðin þyngri en þau voru upphaflega. Hins vegar sé mjög mismunandi hve lengi fólk dvelur í úrræðinu.

Enn eru fordómar hér á landi gagnvart t.d. geðsjúkdómum og þeir sem veikjast af þeim eru margir skjólstæðingar Virk.

„Við erum öll með sögur af einhverjum fordómum gagnvart ákveðnum aðstæðum eða sjúkdómum eða öðrum hlutum, en sem betur fer er verið að draga gardínuna frá víða og það er mjög gott. Það er mjög erfitt að veikjast og það að geta ekki farið til vinnu frá degi til dags er truflun og það er áfall fyrir fólk. Hvort sem við veikjumst líkamlega eða andlega eða hvort þetta sé álag í starfi eða álag vegna félagslegra aðstæðna, allt getur þetta spilað inn í og haft áhrif. Mér finnst fólk mikið meira tilbúið til að opna sig og segja frá, tilbúið til að mæta þeim sérstöku aðstæðum sem það er í“, segir Ágúst Sigurður Óskarsson ráðgjafi hjá Virk sem sinnir stóru svæði á Norðurlandi.

Virk starfsendurhæfingarsjóður 10 ára

Árið 2008 stofnuðu Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins sérstakan sjóð í því skyni að koma einstaklingum sem veikjast aftur inn á vinnumarkaðinn. Stuttu síðar komu stéttarfélög og atvinnurekendur á opinberum vinnumarkaði einnig að sjóðnum sem hlaut nafnið Virk starfsendurhæfingarsjóður.

Um 15.000 manns hafa leitað til Virk frá upphafi. VIRK er sjálfseignarstofnun fjármögnuð að stærstum hluta af atvinnulífi og lífeyrissjóðum sem  greiða samkvæmt lögum hvor um sig 0,10 prósent af heildarlaunagreiðslum til sjóðsins auk þess sem ríkið leggur fram árlegt framlag.

Fyrsta þáttinn af VIRK í heild sinni er að finna hér: