Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, segir mörg teikn á lofti um mikla þenslu í efnahagslífinu. Hún segir ekki sömu hættumerki og voru fyrir hrun. Staðan sé allt önnur betri, ríkissjóður skuldar minna en þá, sem og fyrirtæki og fjölskyldur.
Ásdís segir ekkert í efnahagslífinu kalla á að hér séu fjármagnshöft og að þeim verði að aflétta.
Varðandi Brexit segir hún of snemmt að bregðast við þar sem óljóst er hverjar afleiðingarnar verða.
Viðtal við Ásdísi er á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21:30.