Litríkt samfélag fólks af mörgum þjóðernum hefur skapast í Laugardalnum þar sem það, eldar sér mat, þvær þvottinn og spjallar saman. Margir eru á leið í lengri ferð um landið eða ný komnir úr leiðangri, bæði börn og fullorðnir. Mikil og góð aðstaða hefur byggst upp á svæðinu og það sem fólk á afgangs af mat skilur það eftir fyrir þá sem á eftir koma.
Kolbrún Rósa Valsdóttir, umsjónarmaður á tjaldsvæðinu í Laugardal taldi allt að átta hundruð manns á svæðinu í liðinni viku þegar Hringbraut skoðaði sig um í samfélagi þeirra sem taka náttúruna og ævintýrin fram yfir þægindin.