Isavia tók þá ákvörðun í dag að skila ekki flugvél ALC, en fyrirtækið hafði krafist þess að henni yrði skilað fyrir klukkan 14:00 í dag. Tók Isavia þessa ákvörðun þrátt fyrir úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að ALC þyrftu eingöngu að greiða gjöld tengd þeirri vel sem Isavia er með, en ekki allar skuldir WOW air. ALC greiddi 87 milljónir króna til Isavia í dag og telur fyrirtækið þar með að þeir séu að uppfylla þau skilyrði til að fá vélina afhenta.
Í samtali við Hringbraut sagði Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, að fyrirtækið vissi af mögulegri skaðabóta ábyrgð sem það væri að skapa með þessum gjörningi. „Isavia er að sjálfsögðu meðvitað um mögulega skaðabótaábyrgð í málinu. Mikilvægt er hins vegar að hafa í huga að við höfum ekki staðið í vegi fyrir því að afhending vélarinnar fari fram gegn viðunandi tryggingu – svo sem eins og bankatryggingu-, með fyrirvara um lögmæti kröfunnar en síðan mætti takast á um ágreininginn fyrir dómstólum. Það er ákvörðun leigusalans að fara ekki þá leið.“
Málinu hefur nú verið vísað til Landsréttar og fari svo að úrskurður Héraðsdóms verði staðfestur gæti farið svo að ALC fari í skaðabótamál við Isavia og mun því kostnaður vegna gjaldþrots WOW air verða enn meiri fyrir Isavia en þeir 2 milljarðar sem flugfélagið skuldaði Isavia. Að mati lögfræðinga sem sérhæfa sig í skaðabótarétti sem Hringbraut ræddi við gæti sú upphæð hljóðað upp á tugi milljóna króna, fari svo að ALC vinni það skaðabótamál.