Mögnuð ferðasaga – ferðamenn í umferðinni

Farfuglaheimili Í dag eiga ekkert skylt með þeirri ímynd sem var af sveittum bakpokaferðalöngum sem allir sofa saman í hrúgu. Dóra Magnúsdóttir, markaðs og kynningarstjóri Farfugla, áður Bandalags íslenskra farfugla, segir okkur frá hvernig tegund gistingar þetta er hér á landi og ytra.

Sigríður Lilja Skúladóttir gerði könnun meðal erlendra ferðamanna sem komið hafa til landsins um hvernig þeim fyndist að aka um vegi landsins og einnig hvernig þeir upplifðu almenningssamgöngur. Niðurstöðurnar eru í meistaraprófsritgerð hennar í umhverfisverkfræði við Háskóla Íslands. Linda ræddi við Sigríði Lilju um ansi athyglisverða hlið ferðaþjónustunnar.

Davíð Logi Sigurðsson hefur skrifað nýja bók sem gerist á þeim tíma þegar siglingar landa á milli var samgöngumáti íslenskra ferðalanga sem vildu út í heim. Ljósin á Dettifossi er mikil örlagasaga sem gerist undir lok seinna stríð. Dettifoss var eitt af síðustu skipunum sem þýskir kafbátar sökktu í síðari heimsstyrjöldinn. Davíð Logi segir frá sögunni.

Hjónin Sveinn Rúnar Benediktsson og Margrét Björnsdóttir fóru í 17 mánaða heimsreisu með eins árs barn sitt. Ferðasagan er lyginni líkust. Sigmundur Ernir tók Þau Svein og Margréti tali.

Ferðalagið er umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis og á dagskrá kl.22 í kvöld, fimtudaga. Einnig á tímaflakkaranum.