Mogginn þarf að verða borgaralegt blað á ný

Halldór Jónsson og Páll Vilhjálmsson, báðir bloggarar hjá Morgunblaðinu til margra ára, eru ósáttir við að Morgunblaðið birti greinar eftir Björn Leví Gunnarsson, þingmann Pírata, í blaðinu. Björn Leví skrifar reglulega greinar í Morgunblaðið, nú síðast í gær þar sem hann segist hafa orðið var við misræmi í reglum þingsins.

Vildi Björn Leví í fyrra leggja fram frumvarp um nýjan dagskrárlið þar sem fólk af handahófi yrði boðið að flytja ræðu á þingfundi. Fékk hann þau svör að slíkt bryti í bága við stjórnarskrána þar sem bara þingmenn og ráðherrar sem mega taka til máls á þingfundi. Þetta svar hafi hann svo rifjað upp þegar Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins, hélt ræðu á þingfundi og telur Björn Leví það hafa ráðist af geðþóttaákvörðun. Ætlar hann því að klára frumvarpið og fá úr því skorið hvort stjórnarskráin banni öðrum en þingmönnum og ráðherrum að halda ræðu á þingfundi.
 
Nánar á
 
http://www.dv.is/frettir/2018/07/24/halldor-og-pall-radast-moggann-mogginn-tharf-ad-verda-borgaralegt-blad-ny/