Mogginn með stefnu öfga hægriflokka

Rússar gætu allt eins ákveðið að herða innflutningsbann á Ísland vegna þess hversu mikil ósamstaða ríkir innan ríkisstjórnarinnar í Rússadeilunni. Hverfi Íslendingar frá skuldbindingu sinni gæti það leitt til þrýstings í öðrum Evrópuríkjum að gera slíkt hið sama.

Þetta kom fram í máli Pawels Bartoszek á Rás 2 í gær þar sem hann fór yfir svið Rússadeilunnar sem skekið hefur stjórnarflokkana svo um munar síðustu daga. Pawel er kunnur af þjóðmálaskrifum sínum sem vakið hafa mikla athygli á undanliðnum misserum. Hann segir að sú afstaða sem Morgunblaðið og öfl innan Sjálfstæðisflokksins hafa haldið uppi, þar sem þátttöku Íslands í viðskiptaþvingunum gegn Rússlandi er mótmælt, hljóti að teljast til tíðinda þar sem þessir aðilar hafi í gegnum tíðina verið kjölfestan í vestrænni samvinnu í íslenskum stjórnmálum.

\"Eins og Morgunblaðið hefur verið  að þróast að undanförnu, þá kemur þetta ekki eins og  þruma úr heiðskíru lofti. Þetta er afstaða sem fólk yst á hægri væng í Evrópu hefur verið að taka, Front National og fleiri þannig flokkar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur til dæmis færst töluvert langt til hægri hvað þetta varðar. Hann er reyndar ekki kominn í einhvers konar alþjóðleg tengsl við þessa flokka, en miðað við þessa afstöðu þá er kannski er allavega hluti hans sem vill stefna þangað. Ef við tökum til dæmis afstöðu hans til innflytjendamála í síðustu borgarstjórnarkosningum,“ sagði Pawel á Rás 2

Hann metur nþað svo að aðgerðir vesturveldanna snúist fyrst og fremst að vopnasölubanni og frystingu eigna einstaklinga sem séu nátengdir stjórnvöldum í Kreml. Aðgerðir Rússa gagnvart Íslandi séu því í engu samhengi við áhrifin af þátttöku Íslands. Hins vegar hljóti Rússar að taka eftir viðbrögðunum á Íslandi og þeirri ósamstöðu sem hér ríkir, samanber yfirlýsingar ráðherra og þingmanna stjórnarflokkanna. Það sé því allt eins líklegt að Rússar herði enn frekar á aðgerðum gegn Íslandi til að „þrýsta á sárin“.