Mogginn með nýjan skopmyndateiknara: „Maður bara bombar þessu út og tekur svo bara afleiðingunum“

Björn Heimir Önundarson er nýr skopmyndateiknari Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins.

Frá þessu er greint í helgarblaði Morgunarblaðsins.

Björn Heimir verður 26 ára á árinu en þrátt fyrir ungan aldur hefur hann talsverða reynslu af skoðmyndagerð, að því er fram kemur í grein Morgunblaðsins.

Í samtali við Morgunblaðið segir Björn Heimir að skopmyndir eigi að bíta en ekki einungis vera afþreying. „Tilgangurinn er að ýta við og ögra en um leið vera sniðugur og hugsa um gæðin myndlistarlega.“

Björn Heimir segist í samtali við Morgunblaðið gera ráð fyrir að bíta með teikningum sínum án þess þó að vera með leiðindi, leiðindanna vegna.

Spurður hvort hann óttist viðtökur svarar hann:

„Nei, ég er bara spenntur að byrja. Það þýðir ekkert að velta fyrir sér hvernig fólk kemur til með að taka þessu. Maður bara bombar þessu út og tekur svo bara afleiðingunum.“