Mogginn mátti birta myndir af börnum með Reykjavíkurbréfi

Siðanefnd Blaðamannafélagsins segir að Morgunblaðið ekki hafa brotið siðareglur með því að birta mynd af tveimur börnum með Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins í sumar.

Foreldrar barnanna kærðu myndbirtinguna og sögðu í kærunni að myndin hefði enga tengingu við skrif ritstjórnarinnar, hún hefði verið tekin úr launsátri og hefði ekkert fréttagildi.

Foreldrarnir sögðu staðsetningu myndarinnar innan um skoðanir Davíðs Oddssonar vekja hugrenningatengsl „og tengja saklaus börnin við skoðanirnar, án nokkurrar vitundar þeirra eða okkar foreldranna, og án alls samráðs.“

Morgunblaðið hafnaði því að verið væri að tengja umfjöllun Reykjavíkurbréfsins við myndina. Um væri að ræða hefðbundna ljósmynd af mannlífi á Laugaveginum.

Siðanefndin komst að þeirri niðurstöðu að myndin sé mannlífsmynd og tekin á almenningi þar sem fólk geti ekki ætlast til þess að friðhelgi ríki. Myndin feli ekki í sér óþarfa sársauka eða vanvirðu fyrir börnin. Morgunblaðið hafi því ekki hafa brotið siðareglur með birtingu hennar.