Davíð berji af sér lesendur

Dauði dagblaða er ekki í pípunum þrátt fyrir erfitt árferði. Þetta er mat fyrrum ritstjóra bæði Morgunblaðsins og Fréttablaðsins, Ólafs Stephensen. Ólafur var gestur útvarpsþáttarins Víðsjár á Rás 1 í gær sem fjallaði um framtíð fjölmiðla. Fram kom að fréttir væru ekki lengur söluvara heldur krefjðust neytendur að fá allt fyrir ekki neitt sem gerir rekstraumhverfi flestra fjölmiðla erfitt.

Fleira skýrir þó hnignandi veldi íslenskra dagblaða en markaðsbreytingar. Ólafur Stephensen orðaði það þannig í umræðu um sögulegar lægðir Morgunblaðsins að „Mogginn hefði tekið meðvitaðar ákvarðanir um að berja af sér lesendur“ eins og fyrrverandi ritstjóri blaðsins orðaði það. Fram kom að Mogginn hefði tapað um 35% áskrifenda sinna á sex árum. Hnignun blaðsins er talin tengd ráðningu Davíðs Oddssonar sem gerður var ritstjóri blaðsins eftir að hann hraktist burt úr Seðlabankanum. Þá eiga útgerðarmenn nánast alla eignarhluti blaðsins.

Ólafur sagði í umræðu um þessi mál á Víðsjá að traust og trúverðugleiki hefði mikið að segja um gæfu og gengi fjölmiðla.

Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt við HÍ, auglýsti í þættinum eftir sérstakri stefnu stjórnvalda um fjölmiðlun hér á landi.

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, sagði bjart fram undan og mikil tækifæri í netmiðlun þótt molnað hefði undan hefðbundinni fjölmiðlun.