Lifum ekki á móðurlegu eðli

Áslaug Valsdóttir formaður félag Ljósmæðrafélags Íslands og Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður kjaranefndar félagsins mæta til Lindu Blöndal á Þjóðbraut í kvöld Kl.21-22.

Enn er ósamið í kjaradeilu ljósmæðra við ríkið og er vandinn uppsafnaður, segir Áslaug.

Mennunarkröfur ljósmæðra hér á landi eru 6 ár, fyrst hjúkrunarnám og síðan 2 ár til viðbótar í ljósmóðurnám. Enginn ljósmóðir vinnur án aukavinnu eða álags og slíkt fellt inn í heildarlaunin sem erum 430 þúsund á mánuði. Ljósmæður vilja t.d. undanskilja álagið frá heildarlaununum og fá nám sitt og reynslu betur metið.

Hafi kona starfað sem hjúkrunarfræðingur í tiltekinn tíma, þá fellur sú starfsreynsla niður varðandi laun þegar hún fer til starfa sem ljósmóðir. Hún skiptir þá um stéttarfélag og byrjar á núllpunkti, útskýrir Áslaug.

Katrín Sif segir að hugmyndin um ljósmóðurina sé þannig að þær hljóti að njóta starfs síns svo mikið og vinna þetta bara með móðurástinni og þurfi því kannski ekkert nein sérstök laun. „Það hefur verið þessi hugmynd um að við séum bara keyrðar á móðurlegu eðli og þakklátar bara fyrir að fá að fá að vera til en við lifum ekki á því“.