Móðir hauks segir utanríkisráðherra meira annt um að móðga ekki tyrkneska landsliðið en að finna son sinn

„Þegar fréttist að Haukur hefði farist í loftárás Tyrkja fór ég fram á að utanríkisráðuneytið hefði samband við ráðamenn í Tyrklandi til að fá það staðfest eða hrakið. Ég nefndi m.a. tyrkneska utanríkisráðuneytið og tyrkneska hermálaráðuneytið.“

Þetta segir Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar, sem er talinn hafa látist í Sýrlandi á síðasta ári, í Facebook-hópnum „Vinir Hauks Hilmarssonar.“ Barátta Evu og fjölskyldu hennar fyrir því að fá lík Hauks afhent eða að minnsta kosti upplýsingar um hvar það sé niðurkomið hefur ekki borið erindi sem erfiði.

Hún segir enda einu svörin sem hún hafi fengið vera á svipaða leið: „Ég fékk þau svör að það væri „ekki hægt“, „þannig væru slík mál ekki unnin“, að allt yrði að fara „eftir diplómatískum kanölum“. Þegar bróðir Hauks, pabbi hans, systkini mín og fleiri úr hópi ættingja og vina sættu sig ekki við þau svör og neituðu að yfirgefa ráðuneytið fyrr en utanríkisráðherra fengist til að funda með fjölskyldunni var það svo skyndilega hægt. Síðar komst ég þó að því að símtal Guðlaugs Þórs við varnarmálaráðherra var ekki að hans undirlagi, heldur hafði Rósa Björk Brynjólfsdóttir [þingmaður Vinstri grænna] gengið í málið og séð til þess að varnarmálaráðherra hafði samband.“

„En við skulum athuga að í því tilviki var líka bara um að ræða mannslíf. Ekki eitthvað mikilvægt eins og það að láta tyrknesk stjórnvöld vita að ráðherra vildi alls ekki að menn væru að móðga landsliðið,“ segir Eva að lokum og vísar til ósættis tyrkneskra stjórnvalda vegna komu tyrkneska karlalandsliðsins í knattspyrnu á Keflavíkurflugvöll. Ósættið stafaði af því að landsliðsmönnum og öðrum starfsmönnum fannst biðtíminn á flugvellinum of langur.