Mmr: ólafur með yfirburði í könnun

MMR hefur kannað fylgi við þá sem lýst hafa yfir forsetaframboði. Ólafur Ragnar nýtur mesta fylgisins af þeim sem þegar hafa boðið sig fram en Andri Snær Magnason höfðar til þriðjungs þjóðarinnar samvkæmt könnuninni.

Könnunin var framkvæmd dagana 22. apríl til 26. apríl 2016 og var heildarfjöldi svarenda 953 einstaklingar, 18 ára og eldri.

 Ólafur Ragnar Grímsson hefur afgerandi forystu með 52,6% fylgi.

Andri Snær Magnason er með 29,4% fylgi.

Halla Tómasdóttir hefur 8,8% fylgi.

Aðrir frambjóðendur hafa undir 2% fylgi.

Í greiningu bakgrunnsbreyta kemur fram að háskólamenntaðir og þau sem búsett eru á höfuðborgarsvæðinu eru líklegust til að kjósa Andra Snæ. Ólafur hefur hlutfallslega mest fylgi meðal þeirra sem hafa lægra menntunarstig og búsett eru á landsbyggðinni. Sömu sögu var að segja í síðustu forsetakosningum.

Halla Tómasdóttir hefur hlutfallslega meira fylgi hjá konum og æðstu stjórnendum fyrirtækja.