Mmr: landsmenn vilja listamannalaun

Um 53% Íslendinga eru fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun. Hlutfall þeirra sem eru fylgjandi hefur aukist um yfir 7% síðan í febrúar 2013 og um yfir 14% síðan í mars 2010.

Þetta eru meginniðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar MMR sem gerð var 12. til 20 janúar í ár. Þar kemur jafnframt fram að þau sem styðja Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn eru líklegust til að vera andvíg því að ríkið greiði út listamannalaun en þau sem styðja Samfylkinguna og Vinstri græna eru líklegust til að vera fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun. 

Af þeim sem tóku afstöðu voru 53,2% sem sögðust fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun en 46,8% sögðust andvíg því að ríkið greiddi listamannalaun. Hlutfall þeirra sem eru fylgjandi því að ríkið greiði listamannalaun hefur aukist um yfir 7% frá febrúar 2013 og yfir 14% frá mars 2010.

Viðhorf til listamannalauna eru mjög breytileg eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Sem dæmi eru 77% þeirra sem styðja Framsókn og 68% þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn andvíg listamannalaunum, en á hinn bóginn eru 80% þeirra sem styðja Samfylkinguna eða Vinstri græna fylgjandi því að ríkið greiði út listamannalaun. 

Þegar afstaða lýðfræðilegra hópa er borin saman kemur í ljós að fólk sem er yngra en þrjátíu ára og er búsett á höfuðborgarsvæðinu er líklegra til að vera fylgjandi listamannalaunum. Þar að auki eru heimili með milljón eða meira í mánaðartekjur líklegri til að vera fylgjandi listamannalaunum en tekjulægri hópar.